Grein í Morgunblaðinu: Menntakerfið á krossgötum

Í Morgunblaðinu í dag birtist meðfylgjandi grein, en skýringar á forsendum útreikninga má sjá hér að neðan.

Skýringar á forsendum útreikninga[1]

Hver eru áhrif íbúa af erlendum uppruna á kostnað íslenska menntakerfisins?  Í þessari greiningu er reynt að áætla slíkan kostnað með tilliti til fjögurra stiga skólakerfisins: leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, fyrir bæði ríkissjóð og sveitarfélög. Forsendur útreikninganna er raktar hér að neðan.  

  1. Leikskólar

Meðalkostnaður á hvert barn í leikskóla er áætlaður 4.065 milljónir kr. á ári fyrir heilsdagsígildi samkvæmt Samtökum íslenskra sveitarfélaga. Þar sem öll börn eru ekki á leikskóla allan daginn eru heilsdagsígildi áætluð tæp 16.200 árið 2024. Heildarkostnaður leikskólastigsins á árinu 2024 er áætlaður um 65 milljarðar kr.  Kostnaður á íslenskt barn er áætlaður 3.85 milljónir kr. á ári og 4.85 milljónir á hvert barn með erlent móðurmál. Nettókostnaður leikskólastigsins fyrir sveitarfélögin er áætlaður um 58 milljarðar kr. á árinu 2024 þar sem 12 milljarða megi rekja til barna með erlent móðurmál.

MóðurmálFjöldi barnaHeilsdagsígildiÁætlaður kostnaður (milljarðar kr.)Framlag foreldra (10%, milljarðar kr.)Nettókostnaður sveitarfélaga, (milljarðar kr.)
Íslenska16.86513.49251,95,1946,7
Erlent3.3612.688,813,041,3011,7
Samtals20.22616.180,864,946,4958,4
  • Grunnskólar

Meðalkostnaður á hvert grunnskólabarn er áætlaður 3.35 milljónir kr. á ári af Hagstofu Íslands (apríl 2026).  Meðalkostnaður á hvert íslenskt barn í grunnskóla er áætlaður 3.25 milljónir kr. á ári en 3.85 milljónir fyrir barn með erlent móðurmál. Heildarkostnaður grunnskólastigsins fyrir sveitarfélögin er áætlaður um 158 milljarðar kr. á ári þar sem um 30 milljarða megi rekja til nemenda með erlent móðurmál. 

MóðurmálFjöldi nemendaÁætlaður kostnaður   (milljarðar kr.)
Íslenska39.411128,05
Erlent7.66129,88
Samtals47.162157,9
  • Framhaldsskólar

Kostnaður við framhaldsskólastigið samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2026 er áætlaður 51 milljarður kr.  Kostnaður vegna iðn- og tæknimenntunar er talinn með í þeirri upphæð. Meðalkostnaður á hvern framhaldsskólanemenda er áætlaður 2.13 milljónir kr. á ári.  Kostnaður vegna nemenda með erlent ríkisfang er áætlaður um 4 milljarðar kr. á ári.

RíkisborgararFjöldi framhaldsskólanemendaFjöldi á viðbótarstigi (iðn- og tæknimenntunSamtalsÁætlaður kostnaður (milljarðar kr.)
Íslenskir20.7771.47422.25147,4
Erlendir1.634451.6793,6
Samtals22.4111.51923.93051,0
  • Háskólar

Kostnaður við háskólastigið samkvæmt fjárlögum ársins 2026 er áætlaður 55 milljarðar kr. Einnig er áætlað að rannsóknarsjóðir fjármagni um 1 milljarð kr. af kostnaði við doktorsnám á Íslandi. Heildarkostnaður við háskólastigið er því áætlaður um 56 milljarðar kr. eða um 2.7 milljónir á hvern nemenda að meðaltali.  Áætlað er að kostnaður vegna háskóla- og doktorsnemenda með erlent ríkisfang nemi um 6 milljörðum kr.

RíkisborgararFjöldi háskólanemendaFjöldi doktorsnemendaSamtalsÁætlaður kostnaður (milljarðar kr.)
Íslenskir18.09837618.47449,7
Erlendir2.0592952.3546,3
Samtals20.15767120.82856,0

Áætlaður kostnaður vegna nemenda með erlent móðumál eða ríkisfang

Heildarkostnaður hinna fjögurra stiga íslenska skólakerfisins er áætlaður um 323 milljarðar kr. á ári þar sem hlutur sveitarfélaga er um 216 milljarðar kr. (67 prósent) og ríkissjóðs um 107 milljarðar kr. (33 prósent). Meðalkostnaður á hvern nemenda er áætlaður um 2,7 milljónir kr. á ári. Kostnaður vegna nemenda af erlendum uppruna á fjórum stigum íslenska skólakerfisins er áætlaður um 52 milljarðar kr. á ári eða um 3,4 milljónir kr. á hvern einstakling að meðaltali. 

SkólastigÁætlaður kostnaður sveitarfélaga (milljarðar kr.)Áætlaður kostnaður ríkissjóð         (milljarðar kr.)Samtals         (milljarðar kr.)
Leikskólar11,7 11,7
Grunnskóla29,9 29,9
Framhaldsskólar 3,63,6
Háskólar 6,36,3
Samtals41,69,951,5

[1] Unnið af Arnari Arinbjarnarsyni og Róberti Bragasyni, stjórnarmönnum í Samtökum skattgreiðenda og Dr. Kristni Sv. Helgasyni, sérfræðingi í opinberri stefnumótun.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is

Deila