Skattaspjallið: Hvað kostar sveitarfélagið þitt?

Samtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á útgjöldum, tekjum, skuldum, lýðfræði og þróun síðustu rúmlega tveggja áratuga.

Síðara mælaborðið gerir notendum kleift að leita beint í 1,1 milljón greiðslna sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi frá 2014 til 2025. Heildarútgjöld borgarinnar á tímabilinu eru rúmir 1.018 milljarðar króna. Hægt er að velja birgja, svið, deild, ÍSAT-atvinnuflokk, tegund kostnaðar eða tímabil – og rýna í einstaka birgja með nákvæmri sundurliðun eftir árum og sviðum. Mælaborðið byggir á sömu hönnun og opnir reikningar ríkisins sem samtökin gáfu út fyrr á árinu og hafa verið vinsælasta efni okkar.

Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is

Deila