Hvaða tölum getum við treyst í fjárlagaumræðunni og hvað vita skattgreiðendur landsins í raun og veru um útgjöld og útgjaldaþróun? Staðreyndin er sú að ríkisvaldið er furðu hirðulaust um að greina og meta þróun tiltekinna útgjaldaflokka eins og kemur fram í Skattaspjallinu í dag þar sem Sigurður Már Jónsson ræðir við þá Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson gagnasérfræðinga Samtaka skattgreiðenda. Þeir Róbert og Arnar halda áfram að færa okkur fróðleik úr reikningum ríkisins og benda meðal annars á að íslenska velferðarkerfið er að verulegu leyti hannað á tímabili þar sem samfélagið var mun einsleitara. Það er grundvallað á búsetu frekar en vinnuframlagi, tekjum eða iðgjöldum. Einstaklingar langt að komnir geta átt rétt á sjúkra- eða endurhæfingarlífeyri í allt að fimm ár eftir aðeins eins árs lögheimilisbúsetu með möguleika á tveggja ára framlengingu þótt viðkomandi hafi aldrei starfað hér á landi eða greitt iðgjöld. Sami einstaklingur getur einnig átt rétt á örorku- eða ellilífeyri eftir þriggja ára lögheimilisbúsetu á Íslandi. Er þetta nýja Ísland?
Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is



