Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts á Alþingi fyrir stuttu. Hún segir að það sé tímabært að afnema erfðafjárskatt enda sé hér um að ræða mjög óréttláta tvísköttun á fólk. Eðlilegt sé að spyrja hvort það sé sanngjarnt að skattleggja sömu tekjurnar tvisvar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát. Af öllum fjárverðmætum er við skipti á dánarbúi skal greiða skatt í ríkissjóð áður en þau fara til erfingja hans. Rósa er í Skattaspjallinu að þessu sinni og fer yfir tillögu sína og baráttu gegn þessum ósanngjarna skatti og hagfræðileg rök að baki því.
Svíþjóð og Noregur hafa farið þá leið að afnema erfðafjárskatt en alls hafa tíu ríki innan OECD fellt skattinn niður. Erfðafjárskattur á sér langa sögu hér á landi en hann var tekinn upp samkvæmt tilskipun konungs árið 1792. Nú til dags er erfðafjárskattur 10 prósent af skattstofni dánarbús.
Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is



