Miklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar.
Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum á vinnualdri sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri hækkar úr 13% árið 2012 í 18% árið 2025. Þar munar um mest að hlutfall kvenna á vinnualdri, sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri, fer úr 17% í 23% á sama tímabili og hlutfall karla úr 10% í 13%.
Þá hefur fjöldi einstaklinga með erlendan bakgrunn sem fá endurhæfingar- eða örorkulífeyri sexfaldast frá árinu 2012 en sé litið til kvenna eingöngu hefur fjöldinn sextánfaldast á sama tíma. Þessar tölur vekja athygli en ekki síður sú staðreynd að framkvæmdavaldið veitir ekki upplýsingar um barnalífeyrisgreiðslur í nýlegu svari til þingmanns.
Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is



