Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 er núna til umfjöllunar í fjárlaganefnd eftir 1. umræðu á Alþingi. Varla er hægt að segja að það örli á miklu aðhaldi eða sparnaði af hálfu stjórnarliða. Á sama tíma hækka skattar og gjöld. Til að ræða fjárlagagerðina og hvaða hættur steðja nú að skattgreiðendum á haustmánuðum kemur Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í Skattaspjallið til Sigurðar Más Jónssonar. Um leið verður aðeins tæpt á því mikla starfi sem unnið er að hjá Samtökum skattgreiðenda sem hafa verið að skrifa skýrslur og senda inn umsagnir við þingmál.
Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is



