Skattaspjallið: Skattar og gjöld ferðaþjónustunnar

Ferðaþjónustan er sú grein sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið eða um 650 milljörðum króna á ári. Um leið er skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar króna. Enn er greinin í uppbyggingar- og fjárfestingarfasa en á sama tíma dynja skattahækkanir og ný gjöld á greininni. Til að ræða þetta kemur Bjarnheiður Hallsdóttir í Skattaspjallið til okkar en hún lét af störfum sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar eftir sex ára setu árið 2024. Hún hefur um áratugaskeið rekið ferðaskrifstofuna Kötlu DMI sem sérhæfir sig í að flytja þýska ferðamenn til Íslands. Fáir þekkja rekstrarumhverfið betur en Bjarnheiður sem skrifaði nýlega grein þar sem hún talaði um galna skattheimtu ríkisstjórnarinnar. Hún segir að nýlegar og fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu muni hafa gríðarlega slæm áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar og þar með aðstöðu hennar til verðmætasköpunar um landið allt.

Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is

Deila