Samtök skattgreiðenda fagna í dag 13 ára afmæli, en þau voru stofnuð 16. apríl 2012. Að því tilefni hafa samtökin hleypt af stokkunum nýju hlaðvarpi sem ber nafnið Skattaspjallið. Skattaspjallið er í umsjón Sigurðar Más Jónssonar og mun koma út annan hvern miðvikudag. Við hvetjum áhugasama um að fylgja okkur á hlaðvarpsveitum og smella á bjölluna í hlaðvarpsappinu þínu til að fá tilkynningu þegar nýr þáttur kemur út.

Þeir sem nota Apple Podcast eða aðrar hlaðvarpsveitur, þá er hægt að setja Skattaspjallið í leitina eða setja eftirfarandi RSS link í leit eða þar til gert svæði á hlaðvarpsveitunni: https://anchor.fm/s/103c7b470/podcast/rss Þar sem hlaðvarpið er stofnað í dag, kann að líða einhver tími þar til það birtist á öðrum hlaðvarpsveitum en Spotify.

Líkt og fyrr sagði er stefnt að því að hlaðvarpið komi út aðra hvora viku á miðvikudögum til að byrja með. Annar þátturinn verður spjall við stjórnarmenn í samtökunum sem eru að vinna að tilteknum verkefnum fyrir samtökin og á móti verður fjölbreyttur hópur fólks fenginn í spjall hjá Sigurði Má um skattatengd málefni.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is