Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjármála- og efnahagsráðuneyti erindi þar sem óskað er eftir sundurliðun á fjárhæðum sem bókaðar eru á lykil númer 47882 í ríkisreikningi.
Taflan sýnir bókfærðar fjárhæðir á lykilinn á tímabilinu 2004 til 2023.
Í leiðbeiningum segir um lykil 47882: Gjafir. Hér skal færa allar peningalegar gjafir sem stofnun fær frá öðrum aðilum. Þegar peningar eða aðrir fjármunir eru gefnir er nauðsynlegt að framkvæmdar verði færslur vegna þeirra í fjárhagsbókhaldinu. Meginreglan er að gefnir peningar og aðrir fjármunir verði tekjufærðir í rekstrarreikningi og síðan verði gerð gjaldfærsla þegar keypt er fyrir þá. Gjafir skal skilyrðislaust færa í eignaskrá.
Samtökin bíða enn eftir svari ráðuneytisins.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is