Grænir skattar hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og skattheimta undir merkjum loftslagsmála hvílir þungt á einstaklingum og atvinnulífinu. Um leið rísa stofnanir og félagasamtök verða til sem taka við þessum fjármunum, oft undir heldur óljósum formerkjum. Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur hefur gefið út bókina Hitamál sem hefur vakið mikla athygli. Hann er gestur Skattspjallsins í dag og fer yfir þá skattheimtu sem fer fram undir merkjum loftslagsmála og hvernig óviss vísindi eru látin styðja við aukna skattheimtu. Loftslagshópur Samtaka skattgreiðenda heldur því áfram að spyrja gagnrýnna spurninga. Þegar spurt er um kostnað vegna loftslagsaðgerða koma almenn og ógreinileg svör en verkefnisstjórn loftslagsaðgerða á að skila framvinduskýrslu árlega en hefur sleppt því árin 2023 og 2024. Síðasta skýrsla verkefnisstjórnarinnar kom út árið 2022. Frosti fer yfir þetta allt saman í þættinum.
Skattaspjallið er aðgengilegt á öllum hlaðvarpsveitum.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is



