Samtök skattgreiðenda hafa á undanförnum mánuðum unnið að rannsókn á fjölda stöðugilda og fjölda starfsfólks hjá ríki og sveitarfélögum. Í þessari vinnu hafa komið fram upplýsingar sem staðfesta alvarlega bresti í upplýsingagjöf hins opinbera, bæði hvað varðar skráðan fjölda stöðugilda og fjölda starfsmanna. Endanleg niðurstaða verkefnisins liggur ekki fyrir, en gera má ráð fyrir því að tölur hins opinbera, um umfang starfsemi sinnar, séu vanmetnar um tugi prósenta, bæði hjá ríki og hjá sveitarfélögum. Reynist þetta rétt, er um að ræða verulegan og alvarlegan trúnaðarbrest milli stjórnvalda og skattgreiðenda. Samtökin vinna nú að því fullum krafti að fá fram réttar upplýsingar og munu kynna niðurstöður sínar jafn óðum og þær liggja fyrir.
Facebook færslur
2 days ago
ICEIDA: Dulinn funda-, námskeiðs-, og risnukostnaður![]()
„ICEIDA eyðir tugum milljóna undir þessum eina bókhaldslykli, og ætlast til að skattgreiðendur treysti því bara að ráðstöfun fjárins sé í samræmi við lög og reglur - hjá stofnun sem getur ekki einu sinni gert grein fyrir fjölda starfsmanna sinna.“![]()
... See MoreSee Less
ICEIDA: Dulinn funda-, námskeiðs-, og risnukostnaður
www.skattgreidendur.is
1 week ago
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er nýjasti gesturinn í Skattaspjallinu, hlaðvarpi Samtaka skattgreiðenda. Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.![]()
open.spotify.com/episode/1docIjYZZgMobvcllqVilY?si=1XN-kufFQFyL-m6gk3gDxwSkattaspjallið · Episode
... See MoreSee Less
2 weeks ago
Kvörtun til Umboðsmanns Alþingis: Dómsmálaráðuneyti![]()
Ársreikningar Ríkislögreglustjóra og Landsréttar fyrir árið 2018 eru ókláraðir. Kvörtunin beinist að Dómsmálaráðuneytinu fyrir að bregðast ekki við þessari óreiðu í rekstri umræddra stofnana.![]()
... See MoreSee Less
Kvörtun til Umboðsmanns Alþingis: Dómsmálaráðuneyti
www.skattgreidendur.is