Samtök skattgreiðenda hafa nú sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis. Kvörtunin beinist gegn Innviðaráðuneyti og er vegna ársreikninga Þjóðskrár Íslands – undirstofnunar ráðuneytisins – fyrir rekstrarárin 2018, -19 og -20. Þessir ársreikningar eiga það sammerkt að vera allir óstaðfestir/óundirritaðir af þáverandi forstöðumanni. Samtökin hafa áður fjallað um þetta mál hér, hér, og hér.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is