Könnun Samtaka skattgreiðenda á fjármálum Alþjóðlegrar Þróunarsamvinnu, sem við köllum nú til einföldunar ICEIDA, heldur áfram. Á dögunum fengu samtökin u.þ.b. 600 blaðsíður af samningum og hreyfingaryfirlitum sem samtökin höfðu áður óskað eftir.
Meðal gagna eru hreyfingaryfirlit yfir gjaldaliðinn Kostnaðarhlutdeild fyrir tímabilið frá 2019 til og með 2023. Við samanburð á bókfærðum árlegum gjöldum á þennan lykil skv. yfirliti annars vegar, og upplýsingum sem fram koma í ársreikningum ICEIDA hins vegar, kemur í ljós verulegt misræmi milli þessara heimilda.
Sjá töflu:
Taflan sýnir samantekt á kostnaðarhlutdeild eins og hún er færð til bókar í hvorri heimild fyrir sig. Heimildum ber aðeins saman tvö ár af sjö, árin 2021 og 2022. Misræmi er á milli heimilda öll hin árin og nemur mismunurinn í heild tæpum 270 milljónum króna á tímabilinu.
Samtökin hafa sent erindi til Utanríkisráðuneytis þar sem óskað er eftir skýringum á misræminu. Auk þess er óskað eftir að ráðuneytið veiti loks réttar upplýsingar um úgjöld vegna kostnaðarhlutdeildar.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is