Samtök skattgreiðenda hafa nú sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna ársreikninga Ríkislögreglustjóra og Landsréttar fyrir rekstrarárið 2018. Ársreikningar beggja stofnana eru ókláraðir. Kvörtunin beinist að því fagráðuneyti sem stofnanirnar heyra undir; Dómsmálaráðuneyti, fyrir að hafa sleppt því að bregðast við þessari óreiðu í rekstri umræddra stofnana.

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is