Í dag kom út nýr þáttur af Skattaspjallinu, hlaðvarpi Samtaka skattgreiðenda í umsjón Sigurðar Más Jónssonar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson sem hafa starfað sem sjálfboðaliðar fyrir samtökin á undanförnum mánuðum.

Í þættinum var farið yfir starfið undanfarna mánuði og brot af niðurstöðum starfsins, einkum um fjölda opinberra starfsmanna sem ómögulegt virðist vera að komast að og dræm ársreikningaskil opinberra stofnanna – nokkuð sem gæti ekki viðgengist hjá einkaaðilum.

Við gerum ráð fyrir að hlaðvarp okkar gæti notið nokkura vinsælda innan einkageirans, en líklega ekki meðal opinberra starfsmanna, en hver veit?

Það gleymdist að taka mynd af þremenningunum, svo gervigreindin hljóp í skarðið.

Þátturinn er aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum og hér að neðan á Spotify:

Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki almennings. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is