Starfsemin
Er eitthvað „samnings” við búvörusamninginn?
Opinn morgunverðarfundur um nýgerða búvörusamninga verður haldinn þriðjudaginn 1. mars nk. Á fundinum verður sjónum beint að samningunum séð frá hagsmunum íslenskra neytenda. Að fundinum standa Samtök verslunar og þjónustu, Félag atvinnurekenda, Viðskiptaráð Íslands,...
Auðlindaskattur og auðlegðarskattur óskynsamlegir
Auðlindaskattur í sjávarútvegi er óheppilegur, ef setja á hann á til að tryggja skynsamlega nýtingu fiskistofna, því að það mun aldrei takast. Hagsmunaaðilar munu aldrei samþykkja hann. Horfur á samkomulagi við hagsmunaaðila væru miklu vænlegri, þegar aflaheimildum...
Málstofa um tekjudreifingu og skatta
Föstudaginn 24. október kl. 16 verður málstofa RNH um „Tekjudreifingu og skatta“ í fundarsal Gamma á jarðhæð við Garðastræti 37. Þar mun prófessor Corbett Grainger frá Wisconsin-háskóla í Madison bera saman tvær lausnir á fiskveiðivandanum, skattlagningu eða úthlutun...
Góður fyrirlestur Lawson
Fyrirlestur prófessor Robert Lawson um atvinnufrelsi mánudaginn 28. júlí var vel sóttur og aðeins fjallað um hann í kjölfarið. Þannig birti Viðskiptablaðið grein um fyrirlestur Lawson og Sigríður Andersen fjallaði um hann í pistli sínum í Sunnudagsblaði...
Fyrirlestur: Lawson um atvinnufrelsi
Mánudagurinn 28. júlí 2014 er til merkis um mikinn áfanga í sögu mannkyns. Þá verða hundrað ár liðin frá því, að fyrri heimsstyrjöldin (sem þá var kallaður Norðurálfuófriðurinn mikli) skall á, 28. júlí 1914, þegar hin frjálslynda siðmenning Vesturlanda riðaði til...
15.000 glasamottum dreift á veitingahús
Samtök skattgreiðenda hafa boðað til blaðamannafundar þar sem vakin verður athygli á átaki sem hefst þann 1. mars og í fréttatilkynningunni sagði m.a.: „Um 15.000 glasamottum verður dreift á veitinga- og skemmtistaði í Reykjavík og nágrenni og á nokkrum stöðum úti á...
Fyrirlestur Matthew Elliott á netinu
Föstudaginn 20. september 2013 hélt Matthew Elliott fyrirlestur í Lögbergi, Háskóla Íslands, um viðspyrnuna gegn auknum ríkisafskiptum og ríkisútgjöldum. Elliott er annar stofnanda bresku skattgreiðendasamtakanna, Taxpayers´ Alliance. Nánari upplýsingar hér neðar á...
Hættum að fóðra tröllið: Varnarbarátta skattgreiðenda
Dr. Daniel Mitchell, sérfræðingur í skattamálum hjá Cato stofnuninni í Washington, heldur fyrirlestur á vegum Samtaka skattgreiðenda í samvinnu við RNH, Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt, og AECR, Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna. Fyrirlestur Dr. Mitchell...
Matthew Elliott frá TaxPayers´ Alliance til Íslands
Fyrirlestur í Háskóla Íslands Matthew Elliott annar stofnanda TaxPayers´ Alliance í Bretlandi (samtök skattgreiðenda) kemur til Íslands þann 19. september nk. og heldur m.a. fyrirlestur í Lögbergi, Háskóla Íslands, stofu 101, föstudaginn 20. september kl. 12 - 13. Sá...
Samtökin auglýsa fyrir komandi kosningar
Nú fyrir kosningar hafa Samtök skattgreiðenda safnað fé til að vekja athygli á baráttu sinni fyrir lægri sköttun, betri ráðstöfun skattfjár og mikilvægi þess að skuldir hins opinbera verði greiddar niður. Stuðningsaðilar hafa brugðist vel við og næstu tíu dögum verður...
Um samtökin
Samtök skattgreiðenda voru stofnuð þann 16. apríl, 2012. Að stofnun þeirra stóð hópur fólks sem vill beita sér fyrir því að:
- endurvekja vitund almennings um að vöxtur hins opinbera er ekki óhjákvæmilegur
- ríki og sveitarfélög séu ekki rekin með halla og reikningurinn sendur kynslóðum framtíðarinnar
- skattar verði lækkaðir eftir megni
- hið opinbera fari betur með skattfé og leiti nýrra lausna til að bæta rekstur sinn
- rödd skattgreiðenda heyrist í opinberri umræðu og að sjónarmið þeirra fái aukið vægi